Helgin með Braga Guðmunds
Helgin með Braga Guðmunds
12:15 - 16:00

Núna

Sister Hazel

ALL FOR YOU

Næst

Sister Hazel

ALL FOR YOU

Viku­upp­gjör: Holur, flug og stór­tíðindi á fjölmiðla­markaði

Starri Freyr Jónsson skrifar
Viku­upp­gjör: Holur, flug og stór­tíðindi á fjölmiðla­markaði
Vikuuppgjör Máls málanna rýnir í stærstu mál vikunnar þar sem tilboð Símans í Sýn skók markaðinn, Icelandair náði sögulegu lágmarki og vinsæll áhrifavaldur fékk nóg af ástandinu á götum borgarinnar.

Í nýjasta þætti af hlaðvarpinu Máli málanna rýnir Auðun Georg Ólafsson í stærstu mál vikunnar sem voru til umræðu á Bylgjunni. Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan. Nálgast má alla þættina frítt á öllum helstu hlaðvarpsveitum en efnisöflun er í höndum dagskrárgerðarmanna Bylgjunnar. Ýttu á „Fylgjast með“ og nýjasti þátturinn dettur inn í safnið þitt strax og hann fer í loftið.

Patrekur Jamie, fjölmiðlastjarna og áhrifavaldur, lýsti því yfir í samtali við Reykjavík síðdegis að hann vildi kjósa þann flokk sem lofaði að laga holurnar í malbikinu. Björk Úlfarsdóttir, sviðsstjóri umhverfisöryggis og gæða hjá Colas Ísland hjá Colas Ísland, útskýrði hvers vegna ástandið væri svona slæmt: „Þessi veðrátta þegar það snjóar og rignir til skiptis hjá okkur [...] þetta bara gjörsamlega slátrar malbikinu.“

Stórtíðindi á fjölmiðlamarkaði

Ein stærsta frétt vikunnar var 5,2 milljarða króna tilboð Símans í vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Pálmi Guðmundsson, þrautreyndur fjölmiðlamaður sem þekkir bæði félögin vel, sagði við Reykjavík síðdegis að þetta hefði legið í loftinu í um hálft ár. „Þetta slær mig bara vel. Ég held þetta verði bara hið fínasta mál,“ sagði Pálmi og benti á að Síminn hefði mikinn slagkraft til að taka vel á móti starfsfólki og rekstri.

Icelandair í sögulegu lágmarki

Staðan í Kauphöllinni var einnig í brennidepli mála vikunnar þar sem gengi hlutabréfa í Icelandair fór niður í 0,70 krónur á hlut. Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri félagsins, lýsti stöðunni sem „hrikalegri“ og benti á að félagið hefði ekki borgað arð í níu ár. „Þá er ekkert óeðlilegt að fjárfestar líti aðeins undan,“ sagði Jón Karl og varaði við því að raunveruleg hætta gæti skapast á óvinveittri yfirtöku þegar gengið væri svo lágt sem tók kipp upp á við þegar leið á vikuna.

Auðun Georg Ólafsson stýrir hlaðvarpinu Mál málanna sem fer í loftið upp úr hádegi alla virka daga vikunnar.Vísir/Anton Brink.

Evrópa klýfur samfélagið

Áfram var rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna að Evrópusambandinu. Verða þetta viðræður eða aðlögun? Þjóðin skiptist í fylkingar bergmálshella að sögn Birgis Guðmundssonar, prófessors í fjölmiðlafræði. Brynjar Níelsson og Berglind Guðmundsdóttir ræddu hvort verið væri að fórna fullveldinu eða tryggja hagsmuni þjóðarinnar til lengri tíma.

Hægt er að hlusta á vikuuppgjör Mál málanna og aðra þætti hlaðvarpsins á helstu helstu hlaðvarpsveitum og á Tal.is – Heimili íslenskra hlaðvarpa.

Fleiri greinar