Bragi Guðmundsson
Bragi Guðmundsson
18:55 - 23:00

Núna

Vance Joy

Riptide

Næst

Huey Lewis & News

Stuck With You

Diljá Mist: „Engar greiningar á hags­munum Ís­lands“

Auðun Georg Ólafsson skrifar
Diljá Mist: „Engar greiningar á hags­munum Ís­lands“
Diljá Mist Einarsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í utanríkismálanefnd Alþingis, gagnrýnir harðlega ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að taka þátt í málssókn Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Hún segir enga greiningu hafa verið gerða á hagsmunum Íslands áður en ákvörðunin var tekin.

Greint var frá því á Vísi í dag að Ísland hygðist taka þátt í málsókn Suður-Afríku sem snýr að stríðsrekstri Ísraela á Gaza. Samkvæmt upplýsingum utanríkisráðuneytisins er þetta í fyrsta sinn sem Ísland blandar sér með þessum hætti í málarekstur fyrir Alþjóðadómstólnum.

Diljá Mist segir í samtali við Reykjavík síðdegis málið hafa verið tekið upp á fundi utanríkismálanefndar að hennar beiðni. Hún kveðst aðeins hafa fengið lauslegar upplýsingar um málið áður með minnisblaði og að nefndin hafi ekki haft raunverulegt samráð við ráðuneytið um ákvörðunina.

„Ég óskaði sérstaklega eftir svörum um hvaða greiningar hefðu legið til grundvallar þessari ákvörðun, meðal annars varðandi öryggishagsmuni og efnahags- og viðskiptahagsmuni Íslands,“ segir hún.

„Svörin voru afdráttarlaus: Engar slíkar greiningar höfðu farið fram.“

Bendir á sérstöðu Íslands

Diljá Mist segir það einnig vekja athygli að fá ríki í Evrópu hafi ákveðið að taka þátt í málinu. Hún bendir á að engin Norðurlandaþjóð hafi blandað sér í málareksturinn.

„Þegar maður skoðar hverjir standa að þessu máli og hverjir standa utan við það blasir ákveðið mynstur við. Nánast engar Evrópuþjóðir taka þátt í málinu, nema þá til þess að styðja varnir Ísraels,“ segir hún og nefnir þar meðal annars Bandaríkin, Kanada og Bretland.

Að hennar mati hefði þurft að meta sérstaklega hvort þátttakan gæti haft áhrif á hagsmuni Íslands.

„Ef þetta snýst eingöngu um virðingu fyrir mannréttindum og alþjóðalögum, þá spyr maður sig af hverju nánast allar vina- og nágrannaþjóðir okkar meta það svo að taka ekki þátt. Væntanlega liggur þar að baki eitthvert hagsmunamat,“ segir hún.

Ráðherra tók ákvörðunina

Að sögn Diljár er það utanríkisráðherra sem tekur ákvörðun um þátttöku Íslands í málarekstri af þessu tagi. Hún segir þó eðlilegt að slíkar ákvarðanir séu teknar í nánu samráði við utanríkismálanefnd.

Í lögum sé kveðið á um að í meiri háttar utanríkismálum skuli fara fram samráð við nefndina. Hún telur að það samráð hafi ekki verið fullnægjandi í þessu tilfelli.

„Þessi utanríkisráðherra telur sig uppfylla samráðsskylduna með því að senda nefndinni reglulega minnisblöð. Ég tel að það teljist varla fullnægjandi samráð í svo stórum málum,“ segir hún. 

Hún hafnar því einnig að þátttaka Íslands í málsókninni sé byggð á þingsályktun frá árinu 2023 um að rannsaka brot stríðandi aðila á Gaza.

Hún segist sjálf hafa komið að gerð þeirrar þingsályktunar og að ekki sé hægt að byggja ákvörðunina á henni.

„Það er mjög langt seilst að halda því fram að þessi ákvörðun byggi á þeirri þingsályktun. Hún fjallar um að brot stríðandi aðila verði rannsökuð, en ekki um að Ísland gerist aðili að málssókn sem þessari,“ segir hún.

Næstu skref óljós

Spurð hvort hún telji að Ísland ætti að draga sig út úr málarekstrinum segir Diljá Mist of snemmt að segja til um það.

„Við fengum fyrst svör við þessum spurningum í dag. Ég hélt að til væru greiningar sem hægt væri að fara yfir, en svo reyndist ekki vera,“ segir hún.

Hún bætir við að utanríkismálanefnd hafi um þessar mundir mörg stór mál til umfjöllunar, þar á meðal fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu, varnarsamstarf við Evrópusambandið og nýlega heimsókn utanríkisráðherra til Bandaríkjanna.

Fleiri greinar