Helgin með Braga Guðmunds
Helgin með Braga Guðmunds
12:15 - 16:00

Núna

Marshmello & Jonas Brothers

Leave Before You Love Me

Næst

Bubbi Morthens

Bláu ljósin

Mál málanna í vikunni: Davíðs Odds­sonar minnst, á­tök í Íran og þjóðar­at­kvæða­greiðsla

Starri Freyr Jónsson skrifar
Mál málanna í vikunni: Davíðs Odds­sonar minnst, á­tök í Íran og þjóðar­at­kvæða­greiðsla
Vikuuppgjör Máls málanna fer yfir viðburðaríka viku þar sem stórpólitískar ákvarðanir, andlát áhrifamesta stjórnmálamanns þjóðarinnar og blóðug átök í Íran voru í brennidepli.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan. Nálgast má alla þættina frítt á öllum helstu hlaðvarpsveitum en efnisöflun er í höndum dagskrárgerðarmanna Bylgjunnar. Ýttu á „Fylgjast með“ og nýjasti þátturinn dettur inn í safnið þitt strax og hann fer í loftið.

Vikan hófst á þeim fregnum að Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóri, væri látinn 78 ára að aldri. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, minntist mannsins sem hún telur hafa mótað nútíma Ísland meira en flestir aðrir. „Davíð Oddsson var merkilegasti stjórnmálaleiðtogi alla vega lýðveldistímans og mótaði Ísland eftir hugsjónum sjálfstæðisstefnunnar,“ sagði Guðrún í Reykjavík síðdegis og bætti við að hann hefði verið okkar útgáfa af Margaret Thatcher og Ronald Reagan.

Kosið um ESB í ágúst

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, mælir fyrir þingsályktunartillögu í byrjun næstu viku um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Atvkæðagreiðslan á að fara fram þann 29. ágúst, að því gefnu að þingsályktunartillagan verði samþykkt. Þorgerður Katrín ræddi málið við Bítið á Bylgjunni í vikunni og var spurð hvort tímapunkturinn nú væri réttur, í ljósi stöðu heimsmálanna.

„Ég held einmitt að þetta sé réttur tími til þess að gera þetta. Því að staða Íslands er mjög sterk. Samningsstaða okkar er mjög sterk í þeim heimi sem að við lifum í núna,“ sagði Þorgerður Katrín í Bítinu. Hún telur að Íslendingar þurfi að eiga sæti við borðið til að hafa áhrif á eigin öryggis- og hagsmunamál.

Auðun Georg Ólafsson er umsjónarmaður hlaðvarpsins Mál málanna sem fer í loftið alla virka daga upp úr hádegi. Vísir/Anton Brink.

Blóðugt stríð og tæmd vopnabúr

Átökin í Miðausturlöndum hafa farið harðnandi. Rannsakendur telja líklegt að Bandaríkjamenn beri ábyrgð á árás á stúlknaskóla í Íran þar sem að minnsta kosti 175 létust. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur bendir á að þótt loftárásir Bandaríkjanna og Ísrael hafi verið umfangsmiklar, breyti þær sjaldan stjórnarfari. „Ég veit ekki til þess að það sé dæmi um það að loftárásir hafi orðið til þess að stjórn hafi fallið,“ sagði Erlingur.

Karen Stephensen lýsti hrottalegri hörku klerkastjórnarinnar gegn eigin borgurum: „Þau stilltu bara upp hríðskotabyssum og skutu í allar áttir og um leið og þau slökktu á rafmagninu. Þannig að það gat enginn varið sig og þorði enginn út á götu,“ sagði hún um reynslu Leós Karenarsonar Amiri, Írana sem búsettur er hér á landi.

Andri Ottesen í Kúveit færði okkur svo fregnir af því að varnarkerfi nágrannaríkjanna væru við það að klárast. „Það var í fréttum í gær að það er ekkert ægilega mikið eftir af birgðum... við vorum að tala um daga eða jafnvel klukkutíma,“ sagði Andri um stöðu varnarflauga á borð við Patriot.

Sigurður Sigurðsson byggingarverkfræðingur hefur áhyggjur af framkvæmdum við nýja Landspítalann. Vísir/Vilhelm.

Milljarðadeila um Landspítalann

Hér heima halda deilur um nýja Landspítalann áfram. Sigurður Sigurðsson byggingarverkfræðingur varar við því að verkefnið stefni í þúsund milljarða króna ef horft er til framkvæmda, vaxta og reksturs í 20 ár. „Það er búið að vera að teikna þetta verkefni í á annan áratug. Þetta snýst náttúrulega bara um það hvar við veljum að setja peningana,“ sagði Sigurður. Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýs Landspítala, vísaði þessum útreikningum á bug og benti á að kostnaður væri í samræmi við áætlanir miðað við umfang.

Hægt er að hlusta á vikuuppgjör Mál málanna og aðra þætti hlaðvarpsins á helstu helstu hlaðvarpsveitum og á Tal.is – Heimili íslenskra hlaðvarpa.

Fleiri greinar