Breska hljómsveitin Smokie er á tónleikaferð um heiminn í tilefni 50 ára afmælis og kemur við á Íslandi. Það er að verða uppselt á tónleikana 24. og 25. apríl í Hofi Akureyri en fáir miðar eftir 26. apríl í Eldborg í Hörpu.
Hægt er að tryggja sér miða strax á tix.is/smokie en Bylgjan býður einnig heppnum hlustendum miða sem fá að sjá Smokie í Eldborg.
Fylgist með Ívari Guðmunds og Ernu Hrönn á Bylgjunni og þið gætuð haft heppnina með ykkur og séð eina vinsælustu hljómsveit áttunda áratugarins flytja sín bestu lög!