Bylgjan hélt nýverið upp á 35 ára afmæli sitt með pomp og prakt. Í tilefni af afmælinu var haldið einstakt afmælispartý allan afmælisdaginn í beinni útsendingu á Bylgjunni og í mynd á Vísi og á Stöð 2 Vísi.
Það var gestkvæmt á Bylgjunni allan afmælisdaginn en meðal þeirra sem kíktu við voru þau Bríet, Jón Jónsson, Friðrik Dór og Ellen Kristjánsdóttir, Sigga og Grétar úr Stjórninni og Eyfi Kristjáns og Páll Óskar mættu öll í hús og tóku nokkur lög sem smellpössuðu í gott afmælispartý.
Takk fyrir að hlusta!