Reykjavík síðdegis
Reykjavík síðdegis
16:00 - 18:30

Núna

Hjálmar

Upp í sveit

Næst

Hjálmar

Upp í sveit

Yfir­læknir telur lík­legt að Eriksen verði ráð­lagt að hætta

Reykjavík síðdegis skrifar
Yfir­læknir telur lík­legt að Eriksen verði ráð­lagt að hætta
Mikill óhugur greip um sig meðal knattspyrnuáhugamanna um helgina þegar danski landsliðsmaðurinn Christian Eriksen hneig skyndilega til jarðar í leik. Þetta er í annað sinn á fáum árum sem Eriksen lendir í alvarlegu hjartatengdu atviki á knattspyrnuvelli og segir yfirlæknir á hjartadeild Landspítalans að ekki sé ósennilegt að honum verði nú ráðlagt að leggja skóna á hilluna.

„Þetta er í annað skiptið núna að þetta gerist inni á vellinum og kannski ekki gott að vera að útsetja sig fyrir svona atburðum,“ sagði Davíð Arnar, yfirlæknir á hjartadeild Landspítalans, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Hann tók þó fram að endanleg ákvörðun yrði að byggjast á ítarlegu mati á heilsufari Eriksen og þeim upplýsingum sem læknar hans hefðu undir höndum.

Telur ljóst að bjargráðurinn hafi gripið inn í

Eriksen fór í hjartastopp á Evrópumótinu árið 2021 og fékk í kjölfarið ígræddan bjargráð sem fylgist stöðugt með hjartslættinum og getur gripið inn í ef lífshættuleg takttruflun kemur upp.

Davíð segir atvikið um helgina bera öll einkenni þess að bjargráðurinn hafi gefið rafstuð.

„Hann er að labba þarna og grípur utan um brjóstið, fer svo að líta í kringum sig áður en hann dettur í grasið. Þetta er mjög dæmigert fyrir einhvern sem fær rafstuð frá bjargráðnum,“ sagði hann.

Samkvæmt Davíð er rafstuð frá slíku tæki mjög sársaukafult  og hefur því stundum verið líkt við að fá högg í brjóstkassann með hafnaboltakylfu.

„Það er nokkuð greinilegt að bjargráðurinn hefur gripið inn í og stöðvað lífshættulega takttruflun sem hefði annars getað leitt til hjartastopps.“

Bjargráður og gangráður ekki það sama

Í umræðunni hefur komið fram misskilningur um hvort Eriksen sé með gangráð eða bjargráð.

Davíð útskýrði að um ólík tæki væri að ræða.

Gangráður sé fyrst og fremst ætlaður fólki með hægan hjartslátt eða truflanir sem valda því að hjartað slær of hægt. Bjargráður fylgist hins vegar með hættulegum hraðtakti og getur gefið rafstuð til að koma hjartanu aftur í eðlilegan takt.

„Bjargráður geta líka virkað sem gangráður, en gangráður geta ekki gefið rafstuð eins og bjargráður,“ sagði hann.

Tækið sjálft sé ekki stórt, eða á stærð við afrúnaðan eldspýtustokk.

Gengið vel í fimm ár

Aðspurður hvort mistök hafi verið að leyfa Eriksen að snúa aftur til keppni eftir hjartastoppið árið 2021 sagði Davíð erfitt að leggja mat á það.

Ekki hafi verið opinberað nákvæmlega hvað rannsóknir leiddu í ljós eftir hjartastoppið og því ómögulegt fyrir utanaðkomandi að dæma um réttmæti ákvörðunarinnar.

„Ég hugsa að þeir sem komu að þessari ákvörðun hafi ígrundað hana mjög vel,“ sagði hann.

Hann benti jafnframt á að Eriksen hefði getað stundað atvinnumennsku án alvarlegra atvika í um fimm ár frá því bjargráðnum var komið fyrir.

„En því miður kemur þetta aftur upp í leik núna og þá vakna auðvitað spurningar um hvað skuli gera næst.“

Hundruð Íslendinga með bjargráð

Davíð segir bjargráð vera algenga og árangursríka meðferð við alvarlegum hjartsláttartruflunum.

Að hans mati eru líklega á bilinu 500 til 600 einstaklingar með slíkt tæki hér á landi.

Líftími bjargráðs sé yfirleitt tíu til tólf ár, þó að hann geti styst ef tækið þarf oft að gefa rafstuð.

„Þetta er mjög algeng meðferð við illvígum hjartsláttartruflunum og virkar mjög vel mestanpart,“ sagði hann.

Getur haft mikil andleg áhrif

Davíð segir bæði hjartastopp og rafstuð frá bjargráði geta haft veruleg andleg áhrif á fólk.

Margir þurfi langan tíma til að vinna úr reynslunni, sérstaklega ef þeir hafa upplifað hjartastopp.

Þó sé upplifun fólks oft önnur þegar ljóst er að tækið hafi í raun bjargað lífi þess.

„Ef rafstuðið hefur líklega bjargað lífi þeirra, þá er eins og fólk sé sáttara við það sem gerðist,“ sagði Davíð.

Hann benti þó á að í undantekningartilvikum geti tækin gefið rafstuð án þess að lífshættuleg takttruflun sé til staðar, þó slíkt sé sjaldgæft.

Atvikið um helgina virðist hins vegar samkvæmt lýsingu Davíðs hafa verið dæmi um bjargráð sem greip inn í nákvæmlega eins og honum var ætlað.

Fleiri greinar