Að hans sögn skiptir ferjan miklu máli fyrir daglegt líf fyrir vestan, ekki síst þegar kemur að ferðaþjónustu, flutningum og ferðum fólks til og frá höfuðborginni. Hann benti á að á sama tíma og ferjan væri tekin af svæðinu væri vegurinn suður enn langt frá því að vera boðlegur.
Vegurinn sjaldan verri
Barði sagði þungaumferð og vöruflutninga enn þurfa að fara um gamlan og lélegan veg, sem hann lýsti sem sjötíu til áttatíu ára gömlum á köflum. Á sama tíma hefði dregist og dregist að ráðast í framkvæmdir í Gufudalssveit.
Hann sagðist eiga erfitt með að skilja af hverju ekki hefði enn tekist að bjóða út brúarframkvæmdir, þótt talað hafi verið um þær lengi. Að hans mati ætti að vera hægt að gefa íbúum skýrt svar um hvenær verkið fari af stað og hvenær því ljúki.
Ferðaþjónustan að vakna
Ákvörðunin kemur á sérstaklega viðkvæmum tíma, að sögn Barða, þar sem ferðaþjónustan á svæðinu sé rétt að taka við sér með vorinu. Hann sagði marga ferðamenn nýta Baldur sem hluta af Vestfjarðahringnum, annaðhvort á leið vestur eða til baka.
Nú sé sá möguleiki skyndilega horfinn og það hafi áhrif langt út fyrir daglega samgöngur íbúa. Þá verði ferðir til og frá sunnanverðum Vestfjörðum bæði dýrari og erfiðari þegar fólk þurfi alfarið að reiða sig á lélegt vegakerfi.
„Þeir líta á okkur sem afgangsstærð“
Barði sagði mörgum fyrir vestan finnast stjórnvöld líta á Vestfirði sem afgangsstærð. Hann sagði þá tilfinningu alls ekki nýja af nálinni og að erfitt væri að sjá að svæðið hefði nokkurn tíma verið sett í forgang í samgöngumálum.
„Þeir líta á okkur sem svona afgangsstærð hérna fyrir vestan,“ sagði hann. Hann bætti við að fátt benti til annars þegar ekkert svar bærist frá ráðherrum við gagnrýninni sem nú hefði komið fram.
Skilja stöðu Vestmannaeyinga
Þrátt fyrir óánægjuna sagðist Barði skilja vel að Vestmannaeyingar þyrftu öruggar samgöngur við land. Hann sagði þó það ekki breyta því að sunnanverðir Vestfirðir stæðu eftir enn verr settir þegar bæði ferjan væri farin og vegurinn enn óboðlegur.
Skilaboðin til stjórnvalda væru einföld: að gefa upp hvenær framkvæmdir í Gufudalssveit fari loks af stað og tryggja að fjármagnið verði ekki fært annað enn og aftur.









