Ívar Guðmunds
Ívar Guðmunds
12:15 - 13:00

Núna

Electric Light Orchestra

Shine A Little Love

Næst

Jet Black Joe

Higher And Higher

Vissi ekki hvað hann ætti að kjósa og bjó því til vefinn jaedanei.is

Bítið skrifar
Vissi ekki hvað hann ætti að kjósa og bjó því til vefinn jaedanei.is
Elvar Þormar, eigandi hugbúnaðarhússins Reon, segir vefinn jaedanei.is hafa orðið til af mjög einfaldri ástæðu: hann vissi sjálfur ekki hvað hann ætti að kjósa í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Vefurinn er hugsaður sem gervigreindarknúinn upplýsingavefur þar sem fólk getur spurt spurninga á íslensku, ensku og pólsku og fengið svör byggð á gögnum frá báðum hliðum umræðunnar ásamt opinberum frumheimildum.

Elvar sagði í Bítinu að markmiðið hefði verið að búa til vettvang þar sem hægt væri að nálgast upplýsingar á einum stað í stað þess að þurfa að grafa sig í gegnum margvíslegar heimildir. Hann sagði umræðuna vera heita, mikið væri í húfi og margir vissu einfaldlega ekki hvað þjóðaratkvæðagreiðslan þýddi í raun fyrir þá sjálfa. „Ég sjálfur veit ekki hvað þetta þýðir. Þess vegna er vefurinn gerður,“ sagði hann.

Svarar ekki hvað fólk á að kjósa

Að sögn Elvars er gervigreindin ekki látin leita sjálf út á netið heldur er hún þjálfuð á afmörkuðu gagnasafni sem Reon velur og yfirfer. Þar eru bæði rök með og á móti, auk staðreynda úr opinberum gögnum.

Hann sagði hugmyndina vera að vélin talaði út frá staðreyndum og rökum, en gæfi ekki meðmæli eða leiðbeiningar um hvað fólk ætti að gera. Ef hún er spurð beint hvað fólk eigi að kjósa, þá svarar hún því ekki.

Ekki allir á sama máli hjá fyrirtækinu

Í spjallinu kom fram að það hefði ekki verið markmiðið að búa til vef sem hallaði á aðra hliðina. Elvar sagði engan alveg óháðan, en bætti við að fólkið sem vann verkefnið innan fyrirtækisins væri ekki einu sinni sammála innbyrðis um málið.

Það hafi í raun styrkt verkefnið, því þá hafi verið lögð áhersla á að taka saman gögn frá báðum sjónarhornum og leyfa notandanum að kafa sjálfum ofan í þau.

Byggir á spurningum 

Á síðunni eru sýnilegar ýmsar spurningar sem notendur geta smellt á, en Elvar sagði þær ekki hafa verið skrifaðar fyrirfram af honum eða fyrirtækinu. Þær byggðu einfaldlega á því sem fólk hefði þegar verið að spyrja um.

Þannig verði vefurinn ekki aðeins upplýsingasíða heldur líka vísbending um hvaða atriði veki mesta forvitni og óvissu hjá almenningi.

Elvar sagði þetta fyrst og fremst vera samfélagsverkefni. Reon reki síðuna á eigin vegum og hún sé ekki studd af kostendum sem hafi áhrif á uppsetningu hennar eða efni.

Að hans sögn er verkefnið líka skemmtileg leið fyrir fyrirtækið til að prófa tæknina í öðru samhengi en venjulega, og sjá hvort gervigreind geti nýst almenningi í flóknum samfélagsmálum.

Kanínuhola fyrir þá sem vilja kafa dýpra

Í viðtalinu prófuðu þáttastjórnendur síðuna meðal annars með spurningum um verðlag og um flutning húsdýra og búfjár til Íslands ef landið gengi í Evrópusambandið. Svörin voru ekki sett fram sem einföld já eða nei niðurstaða, heldur í samhengi við reglur, mögulegar undanþágur og það sem liggur fyrir í gögnum.

Elvar sagði það einmitt vera styrk síðunnar: fólk geti farið inn í sín eigin áhugasvið, hvort sem það snúi að krónunni, fiskimiðunum, landbúnaði eða öðrum málum, og grafið sig þannig dýpra ofan í umræðuna.

Fleiri greinar