Ívar Guðmunds
Ívar Guðmunds
12:15 - 13:00

Núna

Kristmundur Axel & Bubbi Morthens

Kominn heim

Næst

Taylor Swift

The Fate Of Ophelia

Sagnaland opnar með þúsund ís­lenskum hljóð­bókum

Bítið skrifar
Sagnaland opnar með þúsund ís­lenskum hljóð­bókum
Ný íslensk hljóðbókaveita, Sagnaland, opnaði fyrir tæpum tveimur vikum og segja stofnendur að viðtökurnar hafi verið fram úr vonum. Veitan er sett fram sem íslenskur valkostur á markaði sem þeir segja hafa verið þröngan, með áherslu á íslenskt efni, fleiri áskriftarleiðir og betri kjör fyrir útgefendur og höfunda.

Þeir Lúðvík Páll Lúðvíksson og Friðrik Salvar Bjarnason, stofnendur Sagnlands, ræddu verkefnið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þar kom fram að undirbúningur hefði staðið lengi yfir, en síðasta sumar hefði meiri þungi verið settur í að klára verkefnið.

„Við opnuðum fyrir tæpum tveim vikum og viðtökur hafa bara verið fram úr vonum,“ segir Lúðvík.

Að sögn þeirra félaga fór veitan af stað með um þúsund titla á íslensku og markmiðið sé að halda sig alfarið við íslenskt efni, hvort sem um sé að ræða frumsamdar bækur eða þýddar bækur á íslensku.

Ætla ekki að keppa við útgefendur

Stofnendurnir sögðu Sagnaland ekki ætla að fara í beina samkeppni við útgefendur með því að framleiða efnið sjálft. Þeir vilji fremur vera vettvangur sem miðli efninu áfram og tryggi að útgefendur og höfundar fái betri þjónustu og kjör.

Þeir sögðu þó að ef höfundar vildu koma verkum sínum í hljóðform gætu þeir fengið aðstoð við upptökur, stúdíó og lesara. Hugmyndin væri þó alltaf sú að höfundar og útgefendur ættu upptökurnar sjálfir og réðu ferðinni.

Fleira en bara hljóðbækur

Auk hljóðbóka verður ýmiss konar annað efni inni í appinu. Þar nefndu þeir meðal annars bókmenntaþætti með Sveppa, bókaklúbbsþátt og efni tengt nýjum útgáfum.

Þeir sögðu það hluta af því sem aðgreindi veituna frá öðrum að ekki yrði einblínt eingöngu á bækur heldur líka efni í kringum bókmenntirnar.

Bjóða fleiri leiðir 

Sagnaland býður upp á þrjár áskriftarleiðir. Þar á meðal er tíu tíma leið fyrir þá sem hlusta minna, ótakmörkuð leið fyrir stórnotendur og fjölskylduleið þar sem fleiri geta deilt aðgangi og hlustunartímum.

Einnig verður bókabúð inni í kerfinu þar sem nýjar bækur geta farið í sölu áður en þær detta inn í streymi. Að sögn stofnendanna gefur það forlögum og útgefendum færi á að halda söluferlinu betur í eigin höndum áður en bókin fer í hefðbundna áskrift.

Stofnendurnir sögðu að markmiðið væri að gera fólki auðvelt að kynna sér þjónustuna án þess að festa sig strax í áskrift. Hægt er að prófa áskrift í þrjátíu daga án skuldbindingar. 

Fleiri greinar