Erna Hrönn
Erna Hrönn
13:00 - 16:00

Núna

Keane

Somewhere Only We Know

Næst

Mark Ambor

Belong Together

Segir dular­full dauðs­föll tengjast UFO-rannsóknum

Bítið skrifar
Segir dular­full dauðs­föll tengjast UFO-rannsóknum
Gunnar Dan, höfundur bókarinnar UFO 101, sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að ellefu einstaklingar sem tengdust rannsóknum á fljúgandi furðuhlutum og geimverum hefðu horfið eða látist við dularfullar aðstæður að undanförnu. Hann sagði fjöldann hafa hækkað úr níu í ellefu á skömmum tíma og taldi málið mögulega tengjast valdabaráttu stórvelda.

Gunnar sagði að þegar hann skrifaði um málið í nýjustu bók sinni, UFO 102, sem kemur út síðar í sumar, hefðu tilvikin verið níu talsins.

Hann bætti við að síðan hefði talan hækkað.

„Ég þarf stanslaust að vera að uppfæra því nú erum við komin upp í ellefu.“

Að hans sögn er um að ræða tíu vísindamenn og eina konu til viðbótar sem hafi bæst í hópinn síðar.

Tengist yfirheyrslu hjá þingmanni

Gunnar nefndi sérstaklega William Neal McCastland, sem hann sagði hafa verið geimverufræðing, fyrrverandi hershöfðingja í bandaríska flughernum og fyrrverandi yfirmann rannsóknarstofu flughersins á Wright Patterson-herstöðinni.

Að sögn Gunnars átti McCastland að mæta til yfirheyrslu hjá þingmanni, en hvarf áður en af því varð.

„Hann átti sem sagt að mæta til þeirra í yfirheyrslu. En tíu dögum seinna var hann horfinn.“

Spurður hverjir gætu staðið að baki sagði hann að fyrsta hugsun sín hefði verið að um væri að ræða öfl innan bandaríska ríkiskerfisins sem vildu þagga niður upplýsingar.

Sambærileg mál í Kína

Gunnar sagði að ekki hefði verið fjallað mikið um að einnig hefðu fimm vísindamenn og konur í Kína með tengsl við sama málaflokk horfið á sama tímabili.

„Þannig að þetta er mögulega hluti af einhvers konar köldu stríði milli Rússlands, Bandaríkjanna og Kína.“

Að hans mati gæti hér verið um að ræða baráttu um hver kæmi fyrstur fram með upplýsingar um tilvist ójarðneskra lífvera og fljúgandi furðuhluta.

Sannfærður að verurnar séu komnar

Í viðtalinu sagðist Gunnar ekki efast um að geimverur væru þegar hér.

„Þær eru komnar.“

Hann sagði þá afstöðu byggja bæði á eigin reynslu og frásögnum annarra. 

Að hans mati snýst málið ekki lengur um það hvort verurnar séu hér, heldur frekar hvaðan þær komi, hversu lengi þær hafi verið hér og hvaða merkingu það hafi fyrir manninn sjálfan.

Gunnar vísaði einnig til orða bandaríska þingmannsins Tim Burchett, sem hann sagði hafa fengið upplýsingar í trúnaðarumfjöllun um málaflokkinn. Burchett teldi að málið væri svo stórt að það gæti breytt heimsmynd fólks.

„Málaflokkurinn í heild sinni sé það skrýtinn og rosalegur að hann muni velta bara heimsmyndinni eins og við skiljum hana.“

Um leið sagði Gunnar að ekkert benti til þess að þessar verur hygðust granda mannkyninu.

„Ef þær hefðu einhvern ásetning hvað varðar að útrýma mannkyni eða ná hérna einhverjum yfirráðum, þá væru þær löngu búnar að því.“

Ný bók og nýr vettvangur

Undir lok viðtalsins sagði Gunnar að UFO 102 væri nú í yfirlestri og færi meira inn á heimspekilegar og andlegar spurningar en fyrri bókin.

Hann sagðist einnig hafa opnað TikTok-reikning þar sem hann færi yfir nýjustu fréttir í UFO-málaflokknum.

Auk þess sagðist hann hafa stofnað stuðningshóp fyrir fólk sem hefði lent í reynslu sem tengdist þessum málum. Þar væru átta manns og hittist hópurinn einu sinni í mánuði.

Fleiri greinar