Um síðustu helgi heimsóttum við hinn heimsfræga Fiskidaginn mikla á Dalvík. Við höfum margoft tekið þátt í þessari merkilegu hátíð þar sem íbúafjöldinn margfaldast og einstök stemmning ríkir enda er allri þjóðinni boðið í mat. Við sendum út allan föstudaginn frá Bárubúð og einnig þátt Hemma Gunn og Svansíar á laugardeginum.
Hemmi Gunn og Svansí héldu ótrauð áfram og var mikið um dýrðir, hopp og hí og trala-la-la hjá þeim! Þau tóku á móti góðum gestum og gangandi í Bárubúð, þeirra á meðal athafnamanninum Júlla Júl, Matta Matt, Eyþóri Inga, Eyjólfi Kristjáns, að ógleymdum Freyjunum, svo fátt eitt sé upptalið og drógu auðvitað í Olísleiknum um utanlandsferðir!